Laus störf

Sölustjóri

Leitum að góðum sölustjóra sem jafnframt er öflugur sölumaður

Um er að ræða sölu á kynningarvörum þar með talinn vinnufatnaður. Helstu vöruflokkar eru fatnaður, pennar, húfur, töskur, fánar og fleira. Yfirleitt eru vörurnar merktar með logoum viðskiptavina. Það er ýmist gert í okkar meringarverksmiðju eða hjá birgjum.

Hæfniskröfur:
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur og æskilegt er að geta sýnt fram á söluárangur í fyrri störfum. Góð menntun sem nýtist í starfi er nauðsyn svo sem stúdentspróf og jafnvel viðskiptamenntun. Starfið reynir á söluhæfileika, vönduð vinnubrögð, tölvukunnáttu, íslenskukunnáttu, enskukunnáttu og færni í mannlegum samskiptum. Fyrirspurnir og raunhæft verkefni verða lagðar fyrir þá umsækjendur sem koma til greina.
Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að leggja sig allan fram til að ná árangri.
Reglusemi er nauðsyn og reykleysi er kostur.

Áhugasamir sendi umsókn á gudjon@tanni.is, ásamt mynd merkt “Sala” fyrir 23. október 2011.


Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica