Starfsmannastefna

Starfsmannastefna

MerkingarStarfsfólk Tanna er mikilvægasta auðlind fyrirtækisins.

Því er leitast við að ráða fólk sem er mjög hæft á sínu sviði og það hvatt og því hjálpað til að sækja sér viðbótarmenntun til að verða enn færara á sínu sviði. Tanni greiðir hlut í námskeiðum starfsmanna og tekur þátt kostnaði við líkamsrækt.

Tanni kappkostar að starfsmenn finni sig sem eina heild og vinni samstíga að markmiðum sem ná þarf samkvæmt stefnu sem fyrirtækið setur sér.

Starfsfólk Tanna þarf að vera metnaðarfullt og áhugasamt fyrir hönd fyrirtækisins.

Gæta skal jafnræðis við ráðningar og starfsþróun. Starfskjör eiga að vera sambærileg milli kvenna og karla fyrir sömu vinnu.

Hjá Tanna er lögð áhersla á starfsánægju, góðan starfsanda og vellíðan starfsmanna. Það er mikilvægt að starfsmenn virði samstarfsmenn sína og starfsreglur fyrirtækisins. Ekki er síður mikilvægt að stjórnendur virði starfsmenn, skoðanir þeirra og gefi þeim tækifæri til að hafa áhrif á starfsumhverfi sitt. Áreitni og einelti er ekki liðið.

Leitast er við að koma til móts við starfsmenn við að samræma vinnu og fjölskyldulíf.

Framúrskarandi árangur í starfsemi Tanna næst aðeins með samstilltu átaki starfsmanna og góðu samræmi milli starfa.




Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica